Keppnislið KTM Ísland hóf göngu sína 1999. Fyrstu keppendur liðsins voru Einar Sigurðarson, Guðmundur Sigurðsson, Helgi Valur Georgsson og Karl Gunnlaugsson. Árangur liðsins hefur í gegnum tíðina verið hreint frábær. Einar Sigurðarson hampaði fyrsta Íslandsmeistaratitli liðsins í Enduro árið 1999 og einnig árin 2001, 2002, 2003, 2004 og 2007.
Árið 2007 var besta ár KTM Racing Team.
Einar Sigurðarson náði þeim einstæða árangri að vinna Íslandsmeistaratitilinn í Moto-Cross og Enduro.
KTM Racing Team / KFC með Einar, Gulla, Helga Má og Aron vann Enduro liða titilinn.
KTM Racing Team / Milli Mála með Einar, Ragga, Gunna og Einar vann MX liða titilinn.
Heiðar Grétarsson varð Íslandsmeistari í 125cc flokk.
Bryndís Einarsdóttir varð Íslandsmeistari í 85cc kvennaflokk.
Baldvin Gunnarsson varð flokkameistari í E1 Enduro.
Akstursíþróttamaður ársins 2007 var valinn Einar Sigurðarson.
Viggó Viggósson varð Íslandsmeistari í Enduro árið 2000 og MX 2001.
Keppnislið KTM vann Enduro liðameistaratitilinn 1999, 2000, 2001, 2002, 2003, 2005, 2006 og 2007 einnig vann Keppnislið KTM Moto-Cross liðameistaratitilinn 2001, 2002, 2005 og 2007 Aðrir liðsmenn sem hafa keppt með liðinu eða á KTM mótorhjólum og orðið Íslandsmeistarar í sínum flokkum eru Aron Ómarsson, Baldvin Gunnarsson, Guðmundur Stefánsson, Gunnlaugur Karlsson, Heiðar Grétarsson og Bryndís Einarsdóttir.
Á síðast liðnum 9 árum hafa einnig frábærir erlendir ökumenn komið til Íslands og keppt með Keppniliði KTM á Klaustri og í Íslandsmótinu. Þar má helst nefna besta Enduro ökumanninn í heiminum í dag David Knight sem vann Klaustur 2004 ásamt Bretlandsmeistaranum Edward Jones. Margfaldi heimsmeistarinn. Gio Sala keppti á Klaustri 2004. Ed Bradley keppti með KTM liðinu allt sumarið 2005. Dakar hetjan PG Lundmark frá Svíþjóð keppti á Klaustri 2003. Ritstjóri Dirt Bike, Ron Lawson og félagi hans Paul Krause kepptu á Klaustri 2005. Ritstjóri TBM, Si Melber keppti í Íslandsmótinu í Þorlákshöfn 2000.
Fyrir árið 2008 verða þau Einar, Gulli, Helgi Már, Raggi, Baldvin, Gunni, Bryndís, Bjarki, Heiðar Már, Gylfi Freyr, Daníel og Sindri Jón á KTM mótorhjólum í Íslandsmeistaramótinu í MX og Enduro ásamt fjölda annara.
Í lokin viljum við þakka öllum þeim sem valið hafa KTM mótorhjól í keppni og við leik fyrir það traust og er það von okkar að þið veljið KTM áfram.
Einnig viljum við þakka styrktaraðilum okkar Shell, KFC, Mountain Dew, Kit Kat og Artis fyrir stuðningin öll árin ásamt stuðning Michelin við valda keppnismenn.