KTM mótorhjólin eru framleidd í Mattighofen í Austurríki og hafa verið framleidd þar síðan 1953. Árið 2007 verður KTM orðin stærsti mótorhjólaframleiðandi í Evrópu.
KTM Ísland hóf starfsemi sýna árið 1994. Frá árinu 1999 hafa KTM mótorhjólin verið ein mest seldu torfæruhjól á Íslandi. Frábært úrval tegunda innan KTM línunar endurspeglar vinsældir KTM á Íslandi. KTM mótorhjólin koma einnig betur búin staðalbúnaði heldur en flest önnur hjól á markaðnum.
Góð varahlutaþjónusta, gott verð og hátt endursöluverð KTM mótorhjóla gera þau að einum besta kostinum þegar kemur að því að velja sér torfæruhjól.
Öll KTM EXC Endurohjólin eru skráð sem bifhjól á hvítum númerum.