Markmið strákanna er nokkuð einfalt, Íslandsmeistaratitill. Lið KTM Íslands hefur verið sigursælasta liðið síðastliðin 10 ár og liðið sættir sig ekki við neitt minna en Íslandsmeistaratitilinn. Unnið verður að bættri umgjörð fyrir næsta tímabil og pressan hefur því verið sett á ökumenn liðsins um að sigur séu hin einu ásættanlegu úrslit.