Hönnun og gerð Husaberg hjólsins sætir miklum tíðindum í veröld mótorhjólanna.
Hjólið markar tímamót í hönnun Endurohjóla. Meðal þeirra nýjunga sem er að finna í hjólinu er byltingarkennd vélarhönnun þar sem sveifarásnum með sýna gírókrafta er komið fyrir eins nálægt þungamiðju hjólssins eins og hægt er. Þetta gerir það að verkum að léttleiki og beygjueiginleikar hjólsins eru eins og hjá helmingi minna hjóli.
Það er hinn sérstaki 70° halli á cylinder nýja hjólsins sem gerir þetta kleift. Um leið minnkar hæð vélarinnar sem einfaldar vinnuna þegar ventlar eru stilltir. Í hjólinu er líka bein innspýting frá Keihin svo ekki þarf að stilla eftir hita og loftþrýstingi auk þess sem hægt er að velja úr tveimur stillingum á kveikju og innspýtingu eftir því hvort ökumaður sækist eftir hámarks afli eða viðráðanleika.
Loftsían situr hátt milli tanks og sætis og er því vel varin fyrir vatni. Nett og létt plast-afturgrind og nýjar Brembo bremsur eru einnig meðal þess sem gera þetta nýja hjól einstakt. Hjólið er einnig búið rafstarti sem auðveldar til muna gangsetningu og fremri pústpípu sem er hönnuð með það í huga að skemmast ekki ef ökumaður fellur af hjóli sínu. Nýja Husaberg hjólið fæst bæði með 390cc, 450cc eða 570cc vél.
